Ævintýri Ingu

Ævintýri Ingu

19.10.2008 10:17:14 / ingaruna

Smá tiltekt

Já, þá er maður aðeins búinn að taka til á blogginu sínu. Ekki veitti af. Hef ekki gefið mér tíma til að læra á þetta nýja blogg sem var sett inn hér fyrir einhverju síðan. En núna gerði ég það loksins.

Vá hvað ég elska þessi helgarfrí. Fæ bara helgarfrí tvisvar í mánuði og glöggir menn geta því reiknað það út að ég er að vinna aðra hverja helgi. Ég nota þær yfirleitt upp í ystu æsar og varla mikið slappað af... nema þessa helgi :) Var mestallan föstudaginn að búa til jólagjafir þar sem jólin í ár verða með persónulegra mótinu hjá mér. Ekki skemmir það fyrir að maður þarf víst aðeins að halda í aurana og er þetta ágæt leið til þess. Maður eyðir bara tíma í þær í staðinn sem er bara gott mál. Skrapp svo með Brekann minn upp í Bláfjöll þar sem við skottuðumst um saman í dágóðan tíma þangað dimmdi yfir og svaðaleg hríð kom. Ég á handónýtum sumardekkjum staulaðist því hægt og rólega aftur í bæinn. Svo var bara kósýkvöld hjá okkur Breka þar sem við fórum bara snemma að sofa enda fór laugardagurinn í alls konar hlaup og vitleysu.

Fórum í Amazing Race leik með starfsmannafélagi Kynnisferða sem Arctic Rafting sjá um í Hveragerði. Okkur var skipt upp í 3 lið sem hvert innihélt 5-7 manns. Ég lennti í liði með Lazo, bróðir hans Davids, Konna af verkstæðinu, Sveinbirni bílstjóra og Danna úr söluskrifstofunni. Ég var því eini kvenmaðurinn í mínu liði. Fyrsta þrautin okkar var sú að við fengum 2 hrá egg. Annað áttum við að sjóða án þess að fá nein tæki eða tól til þess og hitt áttum við að geyma allan leikinn og koma því heilu og höldnu til skila aftur. Minn hópur ákvað auðvitað að nota móður náttúru við að sjóða eggið og fundum okkur gufuhver. Ótrúlegt hvað það sýðst hratt í svoleiðis. Hin leiðin völdu þá leið að banka uppá hjá fólki og biðja það um að sjóða eggin fyrir sig. Næsta þraut var minnisleikur. 19 myndir voru settar fyrir framan okkur og áttum við að muna þær og skrifa þær svo niður á blað. Þar næst áttum við að semja rímur sem við röppuðum svo um kvöldið. Fjórða þrautin var svo að 5 liðsmenn áttu að hoppa í stórum hellupoka dálitla vegalengd þar til þau komu að pússli sem þau áttu að pússla og svo hoppa til baka. Ég var ekkert voðalega góð í þessu þar sem ég datt alltaf. Það var ekki þangað til uppröðuninni á mannskapnum í pokanum var breytt sem mér tókst að standa í lappirnar. 5ta þrautin var svo að svara helling af spurningum og síðasta þrautin var að fara í sigbelti og renna sér í línu yfir gil með foss í. Það var geggjað gaman og skemmtilegt að sjá fossinn í svona öðru ljósi. Eftir allt þetta var svo slakað á í pottinum í Hveragerðissundlaug áður en farið var á Fjöruborðið og borðað. Rosa skemmtilegur dagur.

Mæli með þessu sem hópefli fyrir fyrirtæki eða stóra vinahópa.

Jæja, ætli maður fari ekki að koma sér í að gera eitthvað af viti. Vinna á morgun og hinn þannig maður þarf að nota daginn í eitthvað skemmtilegt.

Later


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.10.2008 12:46:22 / ingaruna

Helgin

Já þetta er búið að vera þrusu góð helgi. Fyrir utan kannski fyrripart föstudags þar sem ég var svoleiðis að drepast úr þynnku að annað eins hefur vart fundist. Skrapp á fimmtudagsdjamm með strákunum úr vinnunni og þar var fengið sér ogguponsupínulítið í tánna.... beint eftir vakt. Staulaðist samt fram úr þegar komið var að gera við loftnetið hjá okkur þannig að loksins er hægt að horfa á sjónvarpið á þessu heimili. 
Á föstudagskvöldinu skruppum við David svo með starfsmannafélagi Kynnisferða á leikritið Fló á skinni og vá hvað ég hló mikið! Fattaði reyndar hvað þetta er gert alveg rosalega íslenskt, þar sem David náði ekki öllum bröndurunum. En ég mæli alveg hiklaust með þessu. Snilldar leikrit!

Í gær fór ég svo og lék sjúkling fyrir nýliðana mína sem voru að taka nýliðaprófið sitt, sem er sólarhringspróf þar sem þau labba og labba og labba og leysa alls konar pósta á leiðinni. Ég var sem sagt hluti af fyrstu hjálpar póstinum þeirra. Það var rosa gaman að fá að vera með (þótt ég mætti það eiginlega ekki þar sem ég var nýliðaforinginn þeirra) og sjá hvernig þau unnu eftir að hafa verið að alla nóttina og allan daginn á undan. Ég bauð þeim svo heim til mín um kvöldið í smá nýliðapróflokapartý eða get together... enda kannski ekki rífandi stemning þegar rúmlega 10-15 manns hafa ekki fengið að sofa í rúma 40 tíma. Einn sofnaði meira að segja og þá var honum auðvitað strítt alveg á fullu. Fyndnast var svipurinn á honum þegar hann fattaði að við settum nammi upp í hann. :)

Í dag verður svo farið í afmæli til múttunnar minnar sem átti afmæli í gær. Í kvöld verður svo reynt að fara snemma að sofa þar sem ég á að mæta á morgunvakt kl. 4 í nótt.  

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.10.2008 15:32:48 / ingaruna

Heimur versnandi fer!

Já, ég held að það sé allt að fara til helvítis. Fólk missir vinnuna út um allan bæ, ríkið tekur yfir bankana, olían og gjaldmiðlar í toppi og ég veit ekki hvað og hvað. Fékk samt hnút í magann um daginn þegar vinnufélagi minn minnti mig á það að oft héldust í hendur erfiðir tímar og stríð. Nei takk, ég afþakka þriðju heimsstyrjöldina. Enda getur hún varla orðið þar sem við þyrftum þá að skýra hinar 2 upp á nýtt... Fyrri og seinni þýða bara að það séu tvær og verði alltaf bara tvær :) Lýst bara ágætlega á það!

Annars gengur lífið sinn vanagang. Vinna og frí þess á milli. Þessa dagana er ég að reyna að vera hagsýn húsmóðir og búa til jólagjafir. Mér sjálfri finnst svo gaman að fá persónulegar gjafir og þar sem ég er komin í gírinn svona snemma ætti mér að takast að gera allnokkrar. En þetta tekur allt tíma þannig að það er spurning hvað maður kemst yfir mikið. Fer nú að verða búin með tvær þannig það gengur ágætlega.

Við litla fjölskyldan ætlum að fara í okkar fyrstu jeppaferð á nýja jeppanum okkar á morgun. Ætlum að fara með einhverju Kynnisferðaliði að mér skilst, David er að skipuleggja þetta fyrir okkur. Veit bara að Fjallabak varð fyrir valinu og við gistum í eina nótt. Það verður örugglega kalt en þrusu gaman. Litli loðni strákurinn okkar kemur að sjálfsögðu með.

Er að fara í leikhús í kvöld á leikritið Fló á skinni með starfsmannafélagi Kynnisferða og hef heyrt góðar sögur af því. Mér finnst alltaf svo gaman í leikhúsi. Því miður gerir maður allt of lítið af því.

Jæja... betra að koma sér að verki við eitthvað gáfulegra...

Endilega kvitta fyrir komunni svo ég sjái nú að það séu einhverjir sem skoði þetta enn og hafi enn trú á að ég nenni að blogga... svona allavega 2svar á ári :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.09.2008 17:15:22 / ingaruna

Hið daglega líf

Já hið daglega líf er orðið nokkurnveginn eins og það á að sér að vera hjá mér..

Ég er byrjuð að vinna á vöktum hjá Kynnisferðum í afgreiðslunni þeirra niðrá BSÍ. Ég er búin að fá allmörk komment frá vinnufélögum um að það sé gott að fá mig aftur þannig ég get ekki sagt annað en að mér hafi bara liðið mjög vel með þessa ákvörðun mína. Núna er ég í þriggja daga fríi eftir vinnu um helgina. Þó svo að ég sé í fríi hef ég í nógu að snúast.. eins og vanalega kannski :)

Ég mætti á fyrstu leitarhundaæfinguna síðan síðasta vetur síðasta mánudag. Breki var ekki alveg að gera það sem ég vildi að hann gerði enda er hann svo svakalega sjálfstæður. Ég ætla samt að mæta þangað aftur í kvöld og gá hvort það sé ekki eitthvað hægt að hagga við honum. Svo erum við að klára hundaskólann hjá Ástu Dóru á morgun þar sem við förum í próf og auðvitað ætlum við að massa það :) Breki er búinn að vera svakalega duglegur hjá henni og fengið hrós í nánast hverjum einasta tíma.

Eftir prófið á morgun förum við David í dansskólann sem við vorum í í fyrra en þar sem við erum núna orðnir svo miklir snillingar skellum við okkur á framhaldsnámskeið. Við lærum alveg helling þar, s.s. cha cha cha, foxtrott, djæf, vals og fleira. Skemmtilegast fynnst mér samt að dansa djæf þótt hann sé erfiðastur af þessu öllu saman því hann er svo hraður og fjörugur. Vonandi höldum við áfram með hann. Hann dansast svo hratt að ég fékk oft bara krampa í kálfana við að dansa svona hratt á táberginu :)

Við David erum annars í miklum ferðahugleiðingum um þessar mundir. Áveðið hefur verið að fara til Vínarborgar í Austurríki í janúar en það eina sem er orðið staðfest hjá okkur eru 3 nætur í Vínarborg. Við erum með mikið af hugmyndum í kollunum um ferðina en bara spurning hvernig við ætlum að spila úr þeim. Gæti verið að þetta myndi enda með því að við fengjum bíl lánaðan og færum á rúntinn um Evrópu. Við verðum samt að fara að ákveða okkur því verð á flugi er búið að hækka svo svakalega í heiminum.

Við ákváðum um daginn að kaupa okkur jeppa, Nissan Patrol sem við fundum á útsölu. Hann er svaka flottur þótt hann sé bara á 33 tommum. Það er eitthvað sem hægt er að breyta seinna :) Skodinn minn er því til sölu svona ef þið vitið um einhvern sem vantar góðan bíl sem er búinn að vera undir eftirliti bifvélavirkja síðustu árin.

Annars ætla ég bara að fara að drífa mig eitthvað út í náttúruna áður en ég fer á leitarhundahitting og leyfa stráknum mínum að hlaupa aðeins frjálsum. Honum finnst það (eðlilega) alveg æðislega gaman.

Sé ykkur seinna...

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.08.2008 09:13:44 / ingaruna

Sumarið 2008

Sumarið er nýbyrjað og næstum búið. Það hefur svo gjörsamlega farið fram hjá mér og finnst mér það hinn mesti skandall! En er ekki kominn tími á smá blogg?

Eins og kannski flestir vita hef ég verið að vinna hjá ferðaskrifstofunni Atlantik í sumar við að undirbúa og taka á móti skemmtiferðaskipum til Íslands. Þetta er búið að vera þvílíkur skóli fyrir mig því ekki á hverjum degi sem maður getur unnið við svona risadalla. En þar sem ég hef einungis fengið 3,5 helgar í frí síðan í byrjun júní þá sjá þeir sem þekkja mig vel eitthvað dubious við þetta :) Ég vil geta notað sumarið í að ferðast og leika mér þó svo að ég sé til í að vinna líka. Það á ekki við mig að vera föst á skrifstofu þegar sól og sumarylur leikur við alla aðra. Jú skítt með að missa af einum og einum sólardegi og einni og einni helgi... en sumarið í heild sinni á sko ekki við mig. Þar af leiðandi sagði ég upp í síðastliðinni viku og hætti næstu mánaðarmót. Yndislegt fólk sem ég vann með og allt það en bara conceptið á ekki við mig. Því er ég komin í atvinnuleit.... aftur! :)

Eins og ég sagði þá er ég búin að gera lítið annað en að vinna í sumar. Ég hef þó komist 2svar í hjólhýsið hans pabba sem er alveg yndislegt. Ég hef líka ferðast ponsulítið með vinnunni, hef t.a.m. farið 2svar til Akureyrar og einu sinni til Vestmannaeyja.

Talandi um Vestmannaeyjar.... Þjóðhátíð stendur í þessum töluðu orðum sem hæst og hvar er ég??? Aldrei þessu vant ekki í Eyjum :( ó nei, ég er að fara að vinna á eftir, morgun og hinn!!! Þetta kemur sko ekki fyrir aftur. Þjóðhátíðin hlýtur að sakna mín. Það er sko garanterað að ég mæti á svæðið á næsta ári! Hverjir koma með?? Halla ég er búin að skrá þig niður og þú beilar ekki :) hehehe

Jæja better get ready for work. Adios! Þessi dallur er víst að koma á morgun og ég verð að finna rútur til að keyra allt liðið úr honum.

                 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 11:47:58 / ingaruna

Allt að gerast

Já ég er alltaf á fullu að gera eitthvað skemmtilegt...

Norðurlandsreisan ógurlega var farin síðustu helgi og var lagt af stað á föstudeginum um 2 leytið þar sem skipta þurfti um dekkjagang og setja vetrardekkin undir vegna vetrarríkis á Norðurlandi. Svo var ég á svo svakalega mikilvægum fundi að ég gat bara ekki losnað úr vinnunni á þeim tíma sem ég ætlaði mér :) En ferðin hófst á endanum og fjörið byrjaði.

Á föstudeginum var aðallega bara keyrt norður og greyjið Breki minn sló örugglega búrmet í þessari ferð enda var það heimilið hans. Hann var voða duglegur í bílnum þennan dag. Þegar komið var norður skráðum við okkur inn á Sveitahótelið í Sveinbjarnargerði og fórum svo á Greifann.

Á laugardeginum var vaknað snemma, göngutúr tekinn með Breka, morgunmatur og svo var brunað Jólahúsið hjá Akureyri og skroppið í Ríkið. Því næst var haldið í Mývatnssveitina. Tókum klukkutíma göngutúr í Dimmuborgum og kíktum á Námafjall sem var allt á kafi í drullu (reyndar eins og vanalega þar sem þarna eru bara leirhverir) en göngustígarnir voru eitthvað möddugir í þetta skiptið. Vorum því fljót þar. Fórum svo aftur á hótelið og um kvöldið var aftur borðað á Greifanum. Eftir það var farið á kaffihús en við Breki tókum góðan hring á meðan meðfram sjónum.

Þennan dag fengum við þær sorgarfréttir að Max, sæti brúni bróðir hans Breka hefði dáið. Hann fékk sennilega lyfrarbólgu greyjið. Dagurinn varð í kjölfarið hálf undarlegur og hugurinn manns hvíldi mikið hjá honum. 
                            
                                  Max litli súkkulaðikarl

Á sunnudeginum fórum við svo til Húsavíkur og kíktum á Ásbyrgi og Kópasker. Þetta var heljarinnar rúntur og skemmtilegur. Gaman að sjá Ásbyrgi í vetrarlitum og fínt að vera laus við flugurnar sem festa sér alltaf búsetu þar á sumrin. Um kvöldið var kíkt á La Vita e Bella og svo rúntað um götur Akureyrar.

Á mánudeginum pökkuðum við svo niður og lögðum af stað í bæinn. Á leiðinni stoppuðum við á Búlandi þar sem Hulda er með stærstu Huskyræktun á Íslandi, Hulduheimsræktun. Þar býr Maya gotsystir Breka og pabbi hans, Úlfur. Hann á svo líka eitthvað af hálfsystkinum þar. Þetta fannst mér vera hápunktur ferðarinnar enda ekki á hverjum degi sem maður fær að hitta 23 husky hunda og nokkra hvolpa.

Á þriðjudeginum héldum við svo áfram að vera í hundunum og kíktum í heimsókn til Magnýar og Þórs sem eiga mömmu hans Breka, hana Kíöru og sambýlishund hennar, Prins. Það var voða gaman þrátt fyrir að Breki hafi bara fengið að horfa á mömmu sína þar sem hún er á lóðaríi þessa dagana. En honum fannst auðvitað alveg frábært að hitta fjölskylduna og komast aftur á gömul heimkynni.

Í gær kíkti svo Freki bróðir hans Breka í heimsókn ásamt Púka chua bróður sínum og eigendum. Magný og fjölskylda kíktu líka þannig að það var bara margmenni í heimsókn. Þetta var samt svaka gaman og Breki slóst við bróður sinn í 2 klst og batteríin voru alveg búin þegar hann fór.

Ætla að enda þessa færslu á myndum úr ferðinni: 

        
                       David og Breki í Dimmuborgum

     
                                                    Familyphoto

        
                                                       Í Ásbyrgi
         
                                               Úlfur pabbi hans Breka
        
                                                    Ég og David ásamt Breka og Mayu
      
                                                   Ég og 8 vikna hvolpaskott

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.05.2008 19:04:43 / ingaruna

Tíminn líður

Ó já, tíminn líður. Ég verð orðin níræð, komin á elliheimili  og gleymd eftir smá stund :) Neee... smá bjartsýni takk!

Alltaf nóg að gera á þessu heimili. Vinna, vinna og vinna og svo fara kvöldin yfirleitt í eitthvað svaka skemmtilegt. Eitt af því er einmitt Afró. Já, ég er byrjuð í afró og það er sjúklega gaman. Mikil hopp, stórar hreyfingar og dillandi rassar við trommuslátt. I love it!

Ég er búin að láta af mér nýliðana mína núna. Síðasti fundur vetrarins var síðasta miðvikudag og þar með eignaðist ég nokkra fleiri lausa klukkutíma í vikunni. Þetta hefur samt verið strembinn en skemmtilegur vetur með krökkunum mínum.

Við Breki erum byrjuð í víðavangsleitaræfingum og ganga þær svona upp og ofan. Við þurfum að vera duglegri við að taka hlýðni. Fórum 1. maí í Svínadal á æfingu og það var rosa gaman. Svaka gott veður og kom ég heim með rauðann og viðkvæmann nebba. Æfingin endaði í grilli í bústað sem leiðbeinendurnir höfðu afnot af. Frábær skemmtun í góðra vina hópi. Breki er annars næstum búinn að missa allar hvolpatennurnar og er að verða fullorðinn strákurinn. Nokkrum var að sjálfsögðu "kippt" úr á æfingunni þegar við vorum að togast á :) Svo er hann farinn að lyfta löpp og alles.
 
Næstu helgi ætlum við svo að leggja land undir fót ásamt Sirrý og Nonna og skreppa á Norðurlandið. Breki litli kemur að sjálfsögðu með. Þar sem þetta verður sennilega síðasta langferðalagið mitt í sumar þá ætlum við að gera eins mikið og við komumst yfir og sjá margt. M.a. búin að panta að fá að fara í heimsókn til hennar Huldu sem á stærstu Huskyræktunina á Íslandi. Það verður geggjað að hitta pabba hans Breka og Mayu systur hans.

Annars gengur bara vel í nýju vinnunni. Búin að vinna núna í mánuð og mörg verkefni verið kláruð á því tímabili. Það styttist þó í törnina hjá okkur en hún byrjar í byrjun júní.

Inn á milli ætla ég svo bara að láta mig dreyma um næstu ferð sem við David ætlum að fara í. Okkur langar að skella okkur eitthvert til Asíu en þegar heimurinn stendur svona opinn fyrir manni eins og mér finnst hann vera getur verið dáldið erfitt að ákveða sig hvert manni langar að fara. Við ætlum reyndar að reyna að tengja ferðina okkar við hálfsárs reisu Guðrúnar og Halla og reyna að hitta þau einhversstaðar. Hvort það verði Kambodía, Malasía, Indónesía eða einhver annar staður verður bara að koma í ljós. Við ætlum sennilega samt að ferðast smá 2 saman annað hvort á undan eða eftir að við hittum þau. Hugmyndir sem komnar eru upp í sambandi við það eru Kína, Japan, Nepal, Tíbet eða Indland. Ef einhver lumar á góðum hugmyndum eru þær vel þegnar :)

Held að þetta sé bara gott í bili hjá mér....

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.04.2008 09:04:37 / ingaruna

Nýja vinnan

Já svona af því að Silla var farin að kvarta yfir bloggleysi hjá mér sem hún átti sko engan vegin S

Ég er byrjuð í nýju vinnunni minni hjá Atlantik og reyndar búin að vinna þar í næstum hálfan mánuð. Ég er á skrifstofu með stelpu sem er reyndar að fara að hætta næstu mánaðarmót og þá kemur í ljós hver fær sætið hennar. Ég er með geggjað útsýni yfir höfnina og þegar björgunarskipið Ásgrímur S. Björnsson kemur úr slippi þá verð ég eiginlegur passari skipsins, enda vinn ég á hæðinni fyrir ofan Sjóbúð, s.s. Ásgrímur er beint fyrir utan gluggann minn. Mér finnst geggjað að fylgjast með trillukörlunum koma og landa fyrir utan gluggann minn, horfa á þyrluæfingar og fuglana. Þetta er næstum eins og að horfa á lifandi málverk allan daginn.

Mér var auðvitað dempt beint út í djúpu laugina í vinnunni um leið og ég mætti. Ég fór í að telja bæklingalagerinn og í framhaldi af því að gera áætlun fyrir bæklinga sumarsins, einnig tók ég til í birgðageymslunni sem var frekar flókið verkefni þar sem ég vissi ekki hverju mætti henda og hverju ekki og hvað væri notað í hvernig tilgangi. Tókst samt ágætlega hjá mér. Næst átti ég að semja texta á ensku fyrir Djúpavog þar sem við erum að fá eitt skip þangað í sumar. Ég átti líka að búa til ferðir fyrir skipið og reikna út vegalengdir, hafa samband við fyrirtæki fyrir austan og fleira. Þetta fannst mér mjög skemmtilegt verkefni, enda var það næstum óbreytt sent til Skotlands. Núna síðustu daga hef ég svo verið að einbeita mér að "mínu" starfi, s.s. rútubókunum. Búin að biðja fyrirtæki um uppfærðan rútulista og fleiri upplýsingar.

Sem sagt þessi vinna virkar bara ágætlega á mig, enda gæti ég varla nýtt betur saman reynslu og nám eins og í þessu starfi. Það eru þó tveir gallar á gjöf Njarðar... ég heyrði því fleygt fram um daginn að ef sumarið yrði vel skipulagt gætum við kannski fengið frí FJÓRÐU hverja helgi í sumar (ó mig auma! Allar útilegur frestast um óákveðinn tíma) og það tekur mig 20 mín að keyra í vinnuna á morgnanna og óheyrilegt bensín yfir mánaðarbasis :S

Fyrir utan vinnuna gengur lífið sinn vanagang. Árshátíð björgunarsveitarinnar var síðasta laugardag og gekk hún bara vel hjá okkur í skemmtinefndinni. Ég verð í því að sjá um hana á næsta ári þar sem ég lét plata mig í skemmtinefnd á aðalfundi um daginn.

Salsanámskeiðið er búið hjá okkur Sirrý og enn smá tími enn eftir í samkvæmisdönsunum. Til að slá ekki slöku við höfum við Sirrý skráð okkur í afrónámskeið hjá Kramhúsinu. Það verður örugglega hrikalega gaman!

Annars gengur bara vel með Breka þrátt fyrir að hann sé farinn að vera aðeins erfiður. Hann er víst kominn á þann aldur að hann er farinn að reyna á mörkinn og gá hvað hann kemst upp með. Búin að plata leiðbeinendurna úr Leitarhundum til mín í heimsókn í næstu viku til að ræða við þau og fá frá þeim ráð. Svo er ég líka búin að skrá hann í hundaskóla svona svo að David læri eitthvað líka og þannig að við fáum mismunandi viðhorf á hlíðniþjálfun hunds.

Á eftir er ég svo að fara með dýragarðinn minn til læknis þar sem kisan mín er farin að fara út (að sjálfsdáðum) og hefur ekki verið sprautuð í háa herrans tíð. Kúturinn minn þarf svo að fara í ormahreinsun. Búin að plata múttu með mér enda ekkert grín að fara með tvö dýr til læknis. Eftir það förum við Breki svo upp í Hvalfjörð þar sem verið er að kenna nýliðunum mínum fyrstu hjálp 2 sem fjallar um hópslys og viðbrögð við þeim.

Held að þetta sé nóg í bili...

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 16:34:47 / ingaruna

Páskar 2008

Já, þetta voru fínir páskar. Mér finnst heldur stutt frá jólum en páskar koma ekki aftur svona snemma fyrr en eftir 200 ár eða eitthvað var sagt í fréttum um daginn. Ég þarf því ekki að hafa áhyggjur af því í bráð :)

Bróðir hans Davids kom til landsins síðasta miðvikudag. Hann hefur áður búið hér og spilaði þá fótbolta með Leiftri og Breiðablik. Þá var hann kallaður Lazo ef einhver man eftur honum. Það eru þó 10 ár síðan hann flutti í burtu þannig að hann er búinn að gleyma nær allri íslensku en er farinn að rifja hana upp aftur. Hann býr hjá okkur þangað til hann verður kominn með vinnu og húsnæði en þá koma konan hans og dóttir til landsins. Þar sem Lazo hefur verið atvinnumaður í fótbolta í hundrað ár þá er matarræðið á heimilinu aðeins búið að breytast og þeir bræður fara saman út að hlaupa marga kílómetra á dag.

Á fimmtudeginum fórum við í fermingarveislu til Söru Rakelar frænku minnar. Rosa flott veisla og mikið borðað. Gaman að hitta ættingja sína svona af og til. Næsta sunnudag er svo önnur ferming í sömu ætt og er ég þessa dagana að skrautskrifa forsíðuna á gestabókina fyrir þá veislu. 

Föstudagurinn langi fór svo í eintómt át. Bókstaflega! Fórum í kökuboð til pabba og Dóru um kl. 14 og svo var matarboð hjá mömmu kl. 18. Þar fengum við hamborgarahrygg og lambalæri og svo auðvitað ís í eftirrétt. Eftir á var hlammað sér upp í sófa og horft á video. Við vorum svo ekki komin heim fyrr en um miðnætti. 

Á laugardeginum var stússast smá. Farið í Kringluna og keypt í matinn. Svo um kvöldið var farið í bústað til Hödda og Þuru í Árnesi. Við vorum svo þar alveg fram á mánudag með helling af fólki, aðallega úr Vestmannaeyjum. Mikið borðað, legið í leti og horf á sjónvarp. 

Þegar við komum aftur í bæinn var farið beint í hvolpahitting þar sem Breki fékk að hitta bræður sína Skugga, Freka og Max en Max er að flytja til Austurríkis núna á fimmtudaginn :( Þetta var þar af leiðandi kveðju hittingur allavega fyrir Max. Dáldið sorglegt og ég vildi að hann væri ekki að fara. En ég ræð nú minnstu um það. Um kvöldið komu svo Finnbogi og Lina í heimsókn og kíktu á strákinn. 

Þetta voru því bara mjög fínir páskar.... 

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.03.2008 12:49:18 / ingaruna

.

           Gleðilega páska allir!

                   

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.03.2008 15:36:50 / ingaruna

Hvað er að gerast í heiminum?

 Já, það er ekki nema von að maður spyrji sig. Frjármálakerfið allt að fara til fjandans. Aldrei þessu vant er ég ekki með neina ferð í sigtinu og afþakkaði að fara með ferðamála- og landfræðingum til Tælands núna í júní sem er mjög óvanalegt, nema aðstæður í lífi mínu kölluðu á það. Ég er hálf fegin núna þar sem allt er að hækka hin ósköp. Fyrsta sem ég tékka á morgnanna er hversu há evran er orðin. Ég er bara svo fegin að fá ekkert sumarfrí þannig að ég geti ekki freistast til að skoppast eitthvað út í lönd, því ég væri pott þétt búin að bóka eitthvað ef ég ætti nóg af gulli og frítíma.

Hins vegar er líka slæmt að bensínið sé að hækka því þar með hækka ferðir innanlands líka. Jah, ekki nema maður fari í göngu- eða hestaferðir J

Annars er frekar lítið að frétta af þessum bænum. Helgin fór gersamlega í hundana. Á föstudeginum fór ég reyndar bara í heimsókn til pabba og Dóru en á laugardeginum kíktum við Breki tvisvar á hundasýninguna í Garðheimum og sýndum okkur og sáum aðra. Hann varð frekar fljótt þreyttur þarna þar sem hann er enn svo lítill. Við fórum svo og kíktum á Ingvar sem vann með David í IH og hvolpinn hans Vask. Breki varð náttúrulega útkeyrður eftir þetta allt saman og fór að sofa kl. 9 um kvöldið og svaf stanslaust í 12 tíma... vaknaði ekki fyrr en kl. 9 næsta morgun.

Þá reif David sig á lappir og tók strákinn í göngutúr. Því næst var brunað upp í Vigdísarvelli þar sem Breki hitti 2 bræður sína, þá Freka og Skugga og við eigendurnir hittumst að sjálfsögðu líka. Þarna skottuðust þeir í heillangan tíma og fannst sko ekki leiðinlegt. Þegar batteríin á strákunum voru alveg við það að klárast var þeim hent inn í bíl þar sem þeir gátu slakað á á leiðinni í Garðheima eina ferðina enn J Þennan daginn hittum við enn fleiri husky-a heldur en daginn áður og kynntumst nýju fólki. Um kvöldið voru allir þreyttir eftir afrek dagsins en fórum samt í heimsókn til Hödda og Þuru þar sem Breki fékk gríðargott svínseyra að éta ásamt dýrindis harðfiskroði J Heppinn strákurinn.

Gærdagurinn fór svo í RISA Bónus ferð og að ná í vinninga fyrir happdrættið á árshátíðinni hjá Björgunarsveitinni. Vinningarnir eru enn að hrúgast inn þannig að það er nóg að gera hjá okkur Ingunni í því og þori ég nú að segja að aldrei hef ég vitað um glæsilegri vinninga síðan ég byrjaði að mæta á árshátíð hjá þessari fræknu sveit. Um kvöldið var svo haldinn húsfundur hjá okkur skötuhjúunum og vakti Breki að sjálfsögðu mikla lukku J

Í dag var svo meira vinningastúss og svo kíktum við Breki á æskuslóðir mínar í Þverásinn til Guðrúnar og Guðrúnar J já og auðvitað Lonníettu, pulsuhundsins þeirra. Breki og Lonna léku sér saman þrátt fyrir að Lonna væri eitthvað aðeins pirruð. Hann stækkar líka orðið svo hratt að hann er orðinn miklu stærri en hún. En alltaf gaman þegar hann fær að hitta aðra voffa.

Hérna eru svo snilldar myndir frá henni Höllu minni. Hún er greinilega snillingur með myndavélina. Takk Halla fyrir lánið :)

       Drop dead gorgeous myndefni

       "Jæja nú fer ég að verða þreyttur á þessu!"


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 18:57:44 / ingaruna

Nýjasta nýtt

Já, við Breki erum komin til baka eftir svaðilför um Norðurlandið. Þetta var svaka skemmtilegt og lærðum við bæði alveg helling. Ferðin byrjaði þó ekki vel þar sem við Teddi héldum að við værum að fara 3 í Transporter sem þýddi nóg bláss og öllu bókstaflega hent inn í bílinn. Þegar við ætluðum svo að fara að leggja af stað var hringt og sagt að hinn bíllinn sem var með restinni af suðurlandsfólkinu (fyrir utan 2 manneskjur, 2 hunda og 4 hvolpa) væri stopp þar sem hjólalega væri farin úr bílnum. Skyndilega var planinu breytt.. rífa þurfti allt út úr bílnum, setja auka sætisbekk inn, raða öllu upp á nýtt, redda kerru, ná í kerruna, ná í Tomma og hundinn Árna í Mosó og svo pikka upp strandarglópana við vigtina á Kjalarnesi. Þar með vorum við orðin 7 manns og 5 hundar og lögðum af stað norður um 4 klst á eftir áætlun. Það leyt þó ekki vel út þegar Transporterinn varð svo kraftlaus í göngunum. Allir fengu hnút í magann en komumst svo að því að hann hefði farið í save-mode.... s.s. við gátum haldið áfram. Við vorum svo komin norður um 2 leytið um nóttina og gisti allt liðið í 2 húsum á Ólafsfirði. Hundarnir gistu í björgunarmiðstöðinni og fékk Breki að vera hluti af fullorðnu hundunum og gista hjá þeim.
Dagarnir fóru svo allir í æfingar. Yfirleitt var vaknað 7:30 og vorum komin upp á Lágheiði rétt um 9:30. Þar vorum við svo til um 5 um daginn en stundum vorum við að koma niður beint í mat kl. 19. Fyrirlestrar voru svo á kvöldin þannig að maður gerði ekkert annað en að læra, borða, viðra hundinn og sofa smá.
Breki lærði alveg helling... fyrsta daginn fékk hann bara að leika við mig í holu í snjónum og svo hljóp fígúrant fyrir hann.. .en það er manneskja sem hleypur með dót inn í holuna þannig að hundurinn tengir saman að það sé maður í snjónum og þegar hann finnur hann þá fær hann verðlaun... sem eru að leika við eigandann sinn. Þegar námskeiðinu var að ljúka var Breki kominn í það að hann horfði á mann hlaupa ofan í holu á meðan ég hélt í hann og það var látið smá lag af snjó fyrir opið á holunni. Með hjálp minni fattaði Breki svo að hann ætti að grafa í snjóinn til að komast að manninum og það var alveg frábært. Hann náði ekki C-réttindum eins og hinir hundarnir á sama svæðinu þar sem hann er jú bara krakki enþá og er ekki farinn að læra að nota nefið almennilega enþá. Ég vissi það nú samt áður en við fórum norður og var bara sátt við þann árangur sem við náðum saman. Á hinn bóginn umhverfisvandist hann alveg helling þarna þar sem hann var innan um fullt af öðrum hundum, snjósleðum og jeppum, snjóbílum og skrýtnu fólki :)
Held að allir sem voru þarna hafi verið sammála um það að þetta var stórskemmtilegt námskeið og maður kynntist fullt af nýju fólki og hundum alls staðar af landinu...

Myndir eru að finna á www.dyraland.is/dyr/69965

Annars er ekki mikið annað að frétta. Ég er þessa dagana að undirbúa árshátíð björgunarsveitarinnar sem verður 5. apríl. Alltaf nóg að gera í svoleiðis undirbúningi.

Við David fórum svo í IKEA í gær og eyddum stórfé. Keyptum bókahillu og aðrar hillur til að setja upp inn á klósetti. Nú er orðið fátt sem er eftir á þessu blessaða klósetti, en það þarf bara að klára skápinn, s.s. setja hillur inn í hann og hurðir og svo þarf að sauma gardínur og setja filmu í gluggann.

Jamm og já.. svona er það nú...

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 11:39:04 / ingaruna

Allt og ekkert

Ég er enn í "fæðingarorlofi" með hann Breka minn þar sem ég byrja ekki í nýju vinnunni minni fyrr en í apríl. Það er líka bara fínt þar sem ég fæ ekkert sumarfrí í sumar og ég hef þá tíma til að ala litla greyið mitt upp smá.

Það er allt að smella saman með baðherbergið hjá okkur. Búið að mála loftið og David er búinn að kaupa nýtt ljós. Hann er líka búinn að mála ofninn þannig að það sem er eftir er að fá til okkar þurrkara sem við vorum búin að ákveða að kaupa, hengja upp hillur, klára að ganga frá skápnum, bora fyrir sturtuhaushenginu og ég þarf að velja gardínur á litla gluggann. Þetta tekur allt sinn tíma sérstaklega þegar fólk er svona busy eins og við.

Ekki var gert mikið í baðinu síðustu helgi þar sem ég bauð pabba og Dóru í kjúlla á föstudaginn og svo fórum við David og Halli og Kata til Höllu á Selfossi á laugardagskvöldið. Við kíktum í brugghús bróður hennar en hann er að koma með nýjan bjór á markað sennilega um mánaðarmótin sem við fengum að smakka. Hann var bara mjög góður og hrósaði David honum sérstaklega mikið, enda bruggaður í tönkum frá Slóvakíu :D Fórum svo aftur á Selfoss þar sem við nutum veitinga hjá Höllu og fórum tiltölulega snemma í háttinn... nema David sem festist yfir einhverri mynd. 
 
Á sunnudeginum var svo haldið morgunverðarhlaðborð á la Halla. Eftir hádegi var svo farið á sveitarbæ þar sem Breki og við fengum að hitta öll dýrin. Kindur, kýr og hestar og já auðvitað hundar. Breka fannst þetta frekar ófrínilegar skepnur sérstaklega þegar ein kindin reyndi að stanga hann. Ég trúi því samt að hann sé reynslunni ríkari og ögn meira umhverfisþjálfaður. Eftir vöfflur, kleinur og kaffi í sveitinni fórum við að skoða eld gamlan áveituskurð og svo sprunguna sem opnaðist í Suðurlandsskjálftanum árið 2000 sem var magnað að sjá. Því næst kíktum við á Urriðafoss sem var í klakaböndum og Halla missti sig á myndavélinni :) David heimtaði svo að fá að "hitta" Fischer þannig að hann fékk það áður en farið var í bæinn aftur :) Þetta var alveg frábært helgi og Takk kærlega Halla fyrir alla gestrisnina :) Verðum pott þétt að gera þetta aftur seinna!

Fór svo á fund hjá leitarhundum í gær. Það var aðalfundur Suðvestur hóps sem er haldinn 1x á ári. Farið var yfir dagskránna fram á sumar og voru margar spennandi helgar sem komu í ljós... Sporanámskeið og æfingar með Björgunarhundasveitinni, æfingar úti á landi og rústabjörgun með hundum. Þetta verður spennandi starfsár sem byrjar almennilega með trompi næstu helgi. Verðum á bilinu 30-40 manns, allir með hunda á Ólafsfirði. Maður fær að kynnast fólki alls staðar að af landinu og leika sér saman í 5 daga. Það verður geggjað sérstaklega þar sem bræðurnir Breki og Freki verða saman :) Róbert ákvað loksins að koma með :)

En endilega koma svo fólk og kvitta... það er eins og enginn lesi bloggið manns lengur og þá nennir maður varla að blogga....

Farin í bili....  

» 5 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 12:30:10 / ingaruna

The daily life

Já, lífið gengur bara sinn vanagang hér á heimilinu. Við Breki eyðum ómældum tíma saman og skemmtum okkur vel. David fékk þó að hafa hann aðeins á fimmtudag og föstudag þegar hann var veikur heima... eins og hálf þjóðin.

Eins og vanalega er brjálað að gera hjá mér... Dansinn gengur vel og David er næstum hættur að stíga á fæturna á mér... þarf þó nokkra tíma í viðbót. Okkur Sirrý gengur ágætlega að dilla á okkur rassinum þó svo að hún hafi ekki mætt í síðasta tíma og látið mig dansa við styrðasta gaur sem ég veit um! Fór með nýliðunum mínum í sund síðasta miðvikudag og þeim var kennt viðbrögð við hryggáverka í sundlaug, t.d. ef fólk styngur sér í grunna laug og hálsbrýtur sig. Það var mjög fróðlegt þar sem ég hafði ekki lært þetta áður. Á föstudeginum var svo fyrsti fundur kjaftaklúbbsins "Bridget-ar" sem var mjög gaman. Vorum saman komnar nokkrar kjaftaglaðar kerlingar hjá Sirrý og nutum veitinga hennar þó svo að hún hefði ekki verið allt of ánægð með útkomuna á kökunum sínum :) Þær brögðuðust ekkert verr fyrir vikið.

Síðasta laugardag skunduðum við David til Selfossar á árshátíð Ingvars Helgasonar sem haldin var á Hótel Selfossi. Frábær matur, skemmtileg skemmtiatriði en hundleiðinleg hljómsveit. Hlustaði kannski samanlagt á 6 lög með þeim annars var ég bara á röltinu og í herbergispartýum. Annað sem var leiðinlegt við þessa árshátíð var að það var búið að raða fólki fyrirfram niður á borð og átti ég að vera ein með örugglega 10 útlendingum! Ég sagði nei takk og fékk að sitja hjá Rannveigu, enda eyddum við miklum hluta árshátíðarinnar saman. Ekki það að ég sé rasisti... eins og flestir eflaust vita þar sem ég bý með útlendingi :) en þá hafði ég alveg eins getað setið uppá hótelherbergi í 2 klst á meðan maturinn væri þar sem ég myndi skilja sjónvarpið mikið betur en fólkið sem ég sæti með á borði. Við David enduðum með því að sitja á sitthvoru borðinu... allt í góðu samt :)

Sunnudagurinn fór svo í eina allsherjar þreytu. Breki var voða duglegur í pössun hjá Jaro bróður hans Davids þó svo að Jaro hafði lítið fengið að sofa þar sem Breki var alltaf að biðja um að fara út að leika og hann hélt alltaf að hann þyrfti að pissa :)

Við Breki fórum svo á leitarhunda-hlýðni-fund í gær :) Átti hann að sýna allt sem hann hafði lært... innkall eða öðru nafni "komdu", "sestu", "komdu" og "sestu" og svo ganga við hæl. Við vorum ekkert voðalega góð í að ganga við hæl enda ekkert farið í göngutúr í vikunni vegna bólganna í mjöðminni hans. Við verðum bara duglegri í þessari viku. 2 lögregluþjónar komu svo með hundana sína og æfðu fíkniefnaleit á okkur og það var mjög gaman enda ekki á hverjum degi sem maður gerir það. Breki bræddi auðvitað hjarta þeirra og endaði hann sem ljósmyndafyrirsæta hjá þeim :D Við ákváðum svo endanlega í gær að við ætlum að skottast á norðurland, sennilega Dalvík eða Ólafsfjörð 29.feb-5.mars á snjóflóðaleitarnámskeið þó svo að Breki sé of ungur til að taka próf. Það verður örugglega svaka stuð og alveg böns sem við lærum bæði. Er að reyna að peppa Róbert og Freka bróður hans Breka með líka :D Væri gaman ef þeir bræðurnir færu saman.

Jæja.. hætt þessu blaðri í bili :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.02.2008 13:00:06 / ingaruna

Merkur dagur

Í dag gerðist dáldið merkilegt! Ég komst í bað í fyrsta skipti á heimili mínu síðan í október! Hef þurft að fara í sturtu heima hjá hinum og þessum en þó aðallega pabba mínum sem á heima 500 metra frá mér. Það var mjög notalegt að leggjast í nýtt baðkarið með allt á rúi og stúi í kring og slappa af. I love it :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 20